Útborgun séreignarsparnaðar
Útborgunarreglur séreignarsparnaðar eru í samþykktum sjóðsins og í samræmi við 11. gr. laga nr. 129/1997:
Útborgun frá 60 ára aldri
Úttekt á séreign er hægt að hefja frá 60 ára aldri, að vali rétthafans með eingreiðslu eða með dreifingu í tiltekinn tíma.
Útborgun við orkutap
Verði rétthafi öryrki og orkutapið sem hann verður fyrir er 100% á hann rétt á útborgun séreignar sinnar á 7 árum. Ef orkutapið er minna lengist útborgunartíminn samsvarandi.
Útborgun við fráfall
Við fráfall rétthafa greiðist séreign hans út með eingreiðslu til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga.
________________________________________________________________________________________
Úttektarheimild allra rétthafa séreignar - gildir til 1. apríl 2011:
Helstu ákvæði:
- Heimilt er að taka út allt að 111.111 kr. á mánuði í allt að 23 mánuði, þó að hámarki kr. 2.500.000
- Séreign sem hægt er að taka út miðast við inneign þann 1. janúar 2010.
- Úttekt sem greidd er skv. lögum nr. 13/2009 (allt að 1 millj.kr.) dregst frá heildarfjárhæð sem heimilt er að taka út. Þeir sem hafa þegar sótt um samkvæmt því þurfa að sækja um áframhaldandi greiðslur með nýrri umsókn hyggist þeir taka út hærri fjárhæð en 1 millj. af séreignarsparnaði sínum.
- Tekjuskattur er greiddur af úttekt. Það er á ábyrgð rétthafa að að upplýsa í hvaða skattþrepi skattgreiðslur eiga að vera.
- Hámarks úttektarheimild er sú fjárhæð sem hver rétthafi séreignar getur tekið út samtals, óháð því hvort hann á séreign hjá einum eða fleirum vörsluaðila
- Sameinaði lífeyrissjóðurinn, eins og aðrir vörsluaðildar séreignarsparnaðar, þarf samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist
- Rétthafi sækir um útgreiðslu með umsókn og getur afturkallað hana ef aðstæður breytast
Afgreiðsla hjá sjóðnum:
- Rétthafi fyllir út umsókn og skilar til sjóðsins
- Umsókn þarf að berast fyrir 20. dag mánaðarins fyrir fyrstu útborgun
- Sjóðurinn sendir beiðni til ríkisskattstjóra sem svarar um hæl
- Fjárhæð sem samþykkt er til útgreiðslu er færð af núverandi ávöxtunarleið inn á Innlánsleið, innlánsreikning séreignarsparnaðar
- Greitt er út fyrsta virka dag hvers mánaðar
- Sameinaði lífeyrissjóðurinn tekur ekki gjald fyrir þessa þjónustu
Skattlagning:
Við útgreiðslu séreignarsparnaðar er reiknuð staðgreiðsla skatts og dregin frá við útborgun í samræmi við lög á hverjum tíma.
Frá 1. janúar 2010 er skattlagning tekna þrepaskipt. Ef heildartekjur einstaklings eru yfir 200.000 kr. á mánuði og tekjurnar koma frá fleiri en einum greiðanda ber honum að upplýsa um rétt innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, sjá umsókn.
Nánari upplýsingar um skattlagningu tekna eru á vef Ríkisskattsjóra - hér.
Lög nr. 13/2009
Reglugerð
Lög um ráðstafanir í skattamálum, samþ. 21.des. 2009







