Greiðslujöfnun fasteignaveðlána
Í samræmi við lög frá Alþingi um aðgerðir í þágu heimilana verða öll sjóðfélagalán sem eru í skilum sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun frá og með 1. desember 2009. Hægt er að segja sig frá greiðslujöfnun hvenær sem er á lánstíma, ávallt fyrir 20. hvers mánaðar vegna gjalddaga næsta mánaðar á eftir.
Aðferðin við greiðslujöfnun felst í því að reiknuð er ný vísitala, svonefnd greiðslujöfnunarvísitala. Meðan afborganir samkvæmt þessari vísitölu reynast lægri en afborganir samkvæmt vísitölu neysluverðs er þeim hluta af afborgunum fasteignalánsins sem nemur mismuninum frestað þar til greiðslujöfnunarvísitalan hækkar á ný umfram neysluverðsvísitöluna. Sá hluti afborgana sem frestast er færður á sérstakan jöfnunarreikning sem bætist við höfuðstól lánsins. Sé skuld á jöfnunarreikningi við lok upphaflegs lánstíma er lánstíminn lengdur í allt að 3 ár. Að þeim tíma liðnum falla mögulegar eftirstöðvar niður að því gefnu að lánið sé í skilum við lok lánstíma.
Þegar afborganir af láninu, reiknaðar samkvæmt greiðslujöfnunarvísitölunni verða hærri en afborganir reiknaðar samkvæmt neysluverðsvísitölu greiðist mismunurinn inn á jöfnunarreikninginn til lækkunar höfðustól lánsins.
Í hnotskurn:
- greiðslujöfnun lækkar greiðslubyrði strax um allt að 17%
- greiðslujöfnun leiðir til aukins kostnaðar í formi vaxta og verðbóta
- lánstími getur lengst í allt að 3 ár og mögulegar eftirstöðvar láns þá felldar niður
- greiðslujöfnun tekur gildi 1. desember 2009 fyrir öll sjóðfélagalán, nema úrræðið hafi verið afþakkað eigi síðar en 19. nóvember.
Bréf um greiðslujöfnun var sent út til lánþega fyrir miðjan nóvember 2009.
Nánari upplýsingar um greiðslujöfnun má m.a. fá á vefsvæðinu - island.is- á vef Félag- og tryggingamáluráðurneytis og í lagatextanum:
lög nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu heimila, einstaklinga og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.







