Úrræði vegna greiðsluvanda

Sameinaði lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum sem sjá fyrir eða eru í greiðsluerfiðleikum með lán sín hjá sjóðnum þessi úrræði:

Almenn úrræði, enda uppfylli lántaki skilyrði skv. lánareglum sjóðsins:

  • Lengja lánstíma lánsins í allt að 40 ár
  • Breyta jöfnum afborgunum í jafnar greiðslur
  • Leggja vanskil við höfuðstól

Greiðslujöfnun:

Greiðslujöfnun í samræmi við lög sem sett voru á Alþingi í nóvember 2008 - sjá nánar í kaflanum um Greiðslujöfnun.

110% skuldaaðlögun:

          Veðskuldir eru færðar niður að 110% verðmæti fasteignar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum -
          sjá nánar í kaflanum um 110% skuldaaðlögun.

 ,,Frysting" láns:

Frysting láns í 6-12 mánuði. Það þýðir að lántaki greiðir engar greiðslur af láninu meðan frysting varir, en vextir og verðbætur tímabilsins bætast við höfuðstólinn sem verður því nýr og hærri að þessu tímabili loknu og greiðslur hefjast að nýju.

Skilyrði fyrir frystingu (frestun greiðslna):
1. Að greiðsluerfiðleikar stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna slysa, minni atvinnu, atvinnuleysis eða öðrum ófyrirséðum atvikum.
2. Að aðrir lánardrottnar umsækjanda samþykki einnig að veita aðstoð vegna greiðsluerfiðleika.
3. Að greiðslubyrði umsækjanda samkvæmt greiðslumati sé umfram greiðslugetu.
4. Að lán sé í skilum.
5. Að veðhlutfall haldist innan hámarksheimilda sjóðsins. 

Umsókn um frystingu láns þarf  að berast sjóðnum a.m.k 15 dögum fyrir fyrsta gjaldadaga sem óskað er eftir frystingu á.
Frysting fellur niður við sölu á fasteign.

Við skilmálabreytingar gildir að samþykki síðari veðhafa er krafist ef breytingin getur haft áhrif á rétt hans/þeirra.

Starfsfólk á lánasviði sjóðsins veitir nánari upplýsingar og aðstoð vegna þessara úrræða, en einnig er bent á leiðarvísi fyrir skuldara á heimasíðu Umboðsmanns skuldara.

Umboðsmaður skuldara