Spurt og svarað um séreignarsparnað

  • Hvernig geta rétthafar séreignarsparnaðar nálgast upplýsingar um stöðu sína í séreignarsparnaði hjá sjóðnum ? 
    Rétthafar fá ítarlegar upplýsingar um séreignarsparnað sinn á sjóðfélagavefnum á heimasíðunnni. Veflykill að síðunni er skráður á sjóðfélagayfirlit, hafi sjóðfélagi ekki breytt útgefnum veflykli. Einnig er hægt að fá veflykil sendan strax í heimabanka sinn. Þá er smellt á sjóðfélagavefinn efst á síðunni og farið í innskráningu, valið ,,gleymdur veflykill"  og óskað þar eftir veflykli í heimabanka. Hann ætti að birtast strax í heimabankanum þínum.    
  • Á að halda áfram að leggja fyrir í séreignarsparnað ?
    Rétthafar eru hvattir til að halda áfram hafi þeir svigrúm til þess. Þannig njóta þeir m.a. áfram skattahagræðis og 2% mótframlags launagreiðenda. Nánar.
  • Hvaða ávöxtunarleiðir standa til boða fyrir séreignarsparnað hjá sjóðnum ?
    Annars vegar er um að ræða svonefndar Aldursleiðir 1-4, þar sem fjárfestingar taka mið af aldri rétthafans og hins vegar Innlánsleið þar sem séreign er ávöxtuð á verðtryggðum innlánsreikningum, sem njóta ríkisábyrgðar.  Nánar.  
  • Hver er kostnaðurinn við flutning á milli ávöxtunarleiða sjóðsins eða við úttektir ?
    Enginn kostnaður er tekinn vegna þessa. Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur frá upphafi verið með lágmarkskostnað á allri umsýslu vegna séreignar.
  • Hvernig er staðið að innheimtu á séreignariðgjöldum ?
    Hjá sjóðnum er séreignarsparnaður innheimtur í gegnum lögmenn sjóðsins við vanskil launagreiðenda. Við vanskil er fjárhæðin dráttarvaxtareiknuð og fær rétthafi séreignarsparnaðarins dráttarvextina óskipta í sína séreign.
  • Hvernig ber ég mig að ef ég vil hefja séreignarsparnað hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum ?
    Þú getur skráð þig inn hér á heimasíðunni (umsókn), haft samband við okkur í síma 510 5000 en einnig bjóðum við þig að sjálfsögðu velkomna/velkominn á skrifstofu sjóðsins að Borgartúni 30, Reykjavík.

 

Ef aðrar spurningar vakna hvetjum við þig til þess að hafa samband við starfsfólk sjóðsins sem er til þjónustu reiðubúið.