Ábyrgar fjárfestingar skv. reglum SÞ

Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins ákvað á vordögum 2007 að taka upp reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (Principles for Responsible Investment). Reglurnar sem eru leiðbeinandi fyrir stofnanafjárfesta um allan heim fela í sér að þátttakendur skuldbinda sig til að taka tillit til umhverfislegra og félagslegra þátta við fjárfestingar sínar, auk þess sem lögð er áhersla á góða stjórnarhætti fyrirtækja sem fjárfest er í.

Reglurnar voru samdar af leiðandi lífeyrissjóðum og eignavörslufyrirtækjum víða um heim í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar og hafa margir af stærstu lífeyrissjóðum Vesturlanda nú þegar undirgengist reglurnar.

Nýju fjárfestingareglurnar voru meðal helstu umræðuefna á ársfundi sjóðsins 24. maí 2007. Þar fjölluðu Georg Páll Skúlason stjórnarmaður Sameinaða lífeyrissjóðsins og Páll Harðarsson aðstoðarforstjóri OMX Nordic Exchange á Íslandi um reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og áhrif þeirra á rekstur sjóðsins. Í ræðu formanns stjórnar, Þorbjörns Guðmundssonar, kom m.a. fram  að reglur um ábyrgar fjárfestingar falli almennt vel að hlutverki og eðli lífeyrissjóða enda hafi þeir þýðingarmiklu samfélagslegu hlutverki að gegna og almenningur geri kröfu um að þeir axli samfélagslega ábyrgð.

Unnið er eftir aðgerðaráætlun hjá sjóðnum við innleiðingu reglnanna. Í því felst m.a. annars að veita upplýsingar um reglurnar og þátttöku sjóðsins til vörsluaðila, bæði núverandi og nýrra, sem og að óska eftir svörum við grundvallarspurningum hjá þessum sömu vörsluaðilum.  Sjóðurinn er þannig þátttakandi í því stuðla að ábyrgum fjárfestingum um allan heim þar sem ákveðin grundvallar gildi eru höfð til hliðsjónar við fjárfestingarákvarðanir.

Eftirfarandi er þýðing á reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar auk þýðingar á algengum spurningum um efnið:

Reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar

Algengar spurningar um ábyrgar fjárfestingar

Sérstök vefsíða hefur verið gerð um reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar, en þar má m.a. sjá lista þeirra fyrirtækja og sjóða sem eru þegar aðilar að þeim auk reglnanna sjálfra og annars tengds efnis.  Sjá www.unpri.org