Árangur og þjónusta sjóðsins
Sameinaði lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á árangur og góða þjónustu fyrir rétthafa séreignarsparnaðar, sem m.a. kemur fram í:
1. Góðri ávöxtun.
Þrátt fyrir bankahrunið í okt. 2008 og víðtækar afleiðingar þess á ávöxtun eigna hefur raunávöxtun verið jákvæð sl. 5 ár í Aldursleiðum sjóðsins, á bilinu 2,1%-3,2% og nafnávöxtun 10,5%-11,8%. Nánari upplýsingar um ávöxtun einstakra leiða.
2. Úrvali ávöxtunarleiða.
Flestir kjósa að tengja ávöxtunarleiðir við aldur á hverjum tíma og fá þannig heppilega áhættudreifingu miðað við fjárfestingartíma. Fyrir þá hentar Aldursleið sjóðsins mjög vel. Aðrir vilja eiga meira val við að stýra sínum sparnaði. Með því að velja fasta Aldursleið og jafnvel skipta sparnaði sínum á tvær eða fleiri Aldursleiðir er hægt að búa til sitt eigið safn fyrir séreignarsparnaðinn. Einnig er boðin Innlánsleið, sem ávaxtar séreign á innlánsreikningum, að langmestu leyti verðtryggðum.
3. Markvissri upplýsingagjöf til viðskiptavina
Á sjóðfélagavef hér á heimasíðunni er hægt að fylgjast með þróun séreignar sinnar dag frá degi og einnig reikna framtíðareign að gefnum forsendum.
Yfirlit eru send út tvisvar á ári og eru þau jafnframt aðgengileg á sjóðfélagavefnum. Yfirlitin eru mjög ítarleg en á þeim er sundurliðað framlag launþega, framlag launagreiðanda og fyrir hvaða mánuð er verið að greiða. Allar ávöxtunarleiðir eru gerðar upp daglega þannig að viðskiptavinir okkar geta hvenær sem er fengið að vita hvernig ávöxtun fjármuna þeirra er háttað.
5. Virku innheimtuferli.
Hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum er séreignarsparnaður innheimtur í gegnum lögmenn sjóðsins við vanskil, samhliða öðrum lífeyrissjóðsiðgjöldum. Dæmin sýna að þessi sérstaka þjónusta sjóðsins getur skipt rétthafa miklu og ætti að hafa í huga við val á vörsluaðila. Við vanskil er fjárhæðin dráttarvaxtareiknuð og fær rétthafinn dráttarvextina óskipta í sinn sjóð.



