Spurningar og svör.
Hvers vegna býður Sameinaði lífeyrissjóðurinn Örorkuvernd ?
Hlutverk sjóðsins er m.a. að tryggja öryggi sjóðfélaganna, maka þeirra og barna. Með þekkingu á lífeyriskerfi landsmanna teljum við okkur geta gefið góð ráð um skynsamlega tryggingarvernd og með samningum við VÍS hefur tekist að setja saman góða tryggingarvernd á mjög hagstæðum kjörum til hagsbóta fyrir yngri rétthafa í séreignarsparnaði sjóðsins.
Hvernig trygging er þetta ?
Þetta er örorkutrygging, þar sem greiddar eru bætur í einu lagi inn á séreignarreikning viðkomandi, ef örorka vegna sjúkdóms eða slyss er metin 50% eða meiri.
Hvernig greiðast bæturnar út ?
Þær eru greiddar í samræmi við lög og reglur sjóðsins um útborganir séreignarsparnaðar. Miðað við fulla örorku greiðist séreign út á 7 árum.
Hvenær er þörfin mest fyrir Örorkuvernd ?
Réttur til örorkulífeyris hjá lífeyrissjóðum er lítill eða enginn fyrstu tvö til þrjú ár sjóðsaðildar og því er brýnast að hafa þessa vernd þann tíma. Hún er einnig skynsamleg viðbót meðan útgjaldaþörfin er jafnan mest vegna heimilisreksturs. Þá er einnig rétt að geta þess að að vegna reglna lífeyrissjóða um svokallaðan framreikning getur réttur til örorkulífeyris hjá lífeyrissjóði lækkað verulega vegna tímabundinnar fjarveru (yfirleitt ár eða lengur) af vinnumarkaði, t.d. vegna náms.
Hvað þarf ég að gera til að hafa Örorkuvernd ?
Tryggingartakan er sérstaklega einföld ef þú hefur ekki átt við heilsufarsvandamál að stríða. Þá undirritar þú umsókn þar sem þú staðfestir heilsufar og gefur sjóðnum heimild til töku iðgjalds af séreign þinni hjá sjóðnum.
Hvað ef ég get ekki undirritað þessa einföldu yfirlýsingu um heilsufar ?
Engu að síður getur þú sótt um Örorkuvernd. Þá fyllir þú út þessa umsókn og skilar henni inn til sjóðsins eða beint til VÍS. Hjá VÍS er umsóknin metin og þú færð svar frá þeim um niðurstöðu.
Hvernig er iðgjaldið innheimt ?
Iðgjaldið er tekið beint af séreignarsparnaði og því þarft þú ekki að hafa áhyggjur af iðgjaldagreiðslunni meðan séreignarsparnaði er skilað til sjóðsins.
Hversu hagstætt er iðgjaldið ?
Með því að nýta kosti hópsamnings og með góðum samningum við VÍS er iðgjaldið mun lægra en einstaklingum býðst á markaðnum.
Ég greiði í annan lífeyrissjóð get ég fengið Örorkuvernd hjá sjóðnum ?
Já, ef þú greiðir séreignarsparnað til okkar getur þú sótt um Örorkuverndina.
Ég er orðinn 44 ára, fæ ég ekki Örorkuvernd hjá sjóðnum ?
Nei. Hafir þú greitt reglulega í lífeyrissjóð áttu væntanlega þokkalega góð örorkulífeyrisréttindi nú þegar. Við mælum þó með að þú skoðir það sérstaklega og leitir til þíns vátryggingarfélags ef þú vilt bæta við tryggingarvernd þína.
Get ég valið vátryggingarfjárhæðina ?
Nei. Um er að ræða hóptryggingu þar sem leitast er við að hafa alla umgjörð sem einfaldasta en ekki síður að geta boðið góð kjör fyrir skynsamlega vernd sem hentar flestum. Sjá vátryggingafjárhæðir.
Á hverju byggist ákvörðunin um vátryggingarfjárhæðir í tryggingunni?
Fjárhæðin er háð aldri og er valin með hliðsjón að þeim örorkuréttindum sem ávinnast í lífeyrissjóðum. Því er fjárhæðin hæst fyrir yngsta fólkið, 18-24 ára, en lækkar síðan með aldri.
Hvenær fellur Örorkuverndin úr gildi ?
Í lok þess mánaðar sem 45 ára aldri er náð eða fyrr ef vátryggður skilar inn skriflegri uppsögn. Þá fellur Örorkuverndin úr gildi ef séreign vátryggðs dugar ekki til greiðslu iðgjaldsins ?
Er þá ekki möguleiki á tryggingu eftir að 45 ára aldri er náð ?
Jú, VÍS býður þeim sem hafa verið vátryggðir í Örorkuvernd sjóðsins og gátu staðfest heilsufar sitt með einfaldri yfirlýsingu við upphaf tryggingarinnar áframhaldandi tryggingu án nýrrar heilsufarsyfirlýsingar, enda sé þess óskað innan mánaðar frá því Örorkuvernd sjóðsins lýkur. Um nýja tryggingu gilda skilmálar og iðgjaldaskrá VÍS.
Hvernig er skattlagningu háttað ?
Skattlagning er eins og af séreignarsparnaði. Þetta þýðir að iðgjaldið er óskattlagt en tekjuskattur reiknast af útborgunum.



