Helstu kostir Örorkuverndar.
-
Sterk tenging við örorkulífeyrisréttindi lífeyrissjóða
- bætir örorkuvernd ungs fólks - þegar tap ævitekna er mest ef starfsorka skerðist
- fyllir í ,,eyður” örorkulífeyris lífeyrissjóða
- Einfaldleiki
- við tryggingartöku
- við iðgjaldagreiðslu
- Mjög hagstæð iðgjöld
Umsóknarferlið er sérstaklega einfalt. Þegar sjóðnum hefur borist fullnægjandi umsókn tekur vátryggingin gildi skv. skilmála og vátryggingarskírteinið er sent í pósti.
Iðgjaldið er ekki innheimt sérstaklega heldur er það dregið af séreignarsparnaði. Því færðu engan greiðsluseðil eða færslu á greiðslukortið þitt, en sérð frádregið iðgjald á yfirlitum og á sjóðfélagavefnum.
Iðgjaldið er háð vátryggingarfjárhæð og aldri þess sem vátryggður er, en vegna hóptryggingarfyrirkomulags og hagstæðs samnings við VÍS getum við boðið iðgjald sem er mun lægra en almennt gerist.



