Sjóðfélagar og aðildarfélög

Hverjir eru sjóðfélagar Sameinaða lífeyrissjóðsins ?

Öllum launamönnum er skylt að vera í lífeyrissjóði viðkomandi starfshóps eða starfsstéttar en þeir sem ekki eru bundnir af kjarasamningum geta valið sér lífeyrissjóð.  Þannig er öllum iðnaðarmönnum og verkstjórum er starfa á vinnusvæði neðangreindra félaga og eru launamenn, rétt og skylt að vera í Sameinaða lífeyrissjóðnum. Auk þess geta sjálfstæðir atvinnurekendur greitt til sjóðsins.

Eftirtalin stéttarfélög eiga aðild að sjóðnum

Eldri sjóðir sem nú eru hluti Sameinaða lífeyrissjóðsins:

  • Sameinaði lífeyrissjóðurinn hóf starfsemi 1992 við sameiningu Lífeyrissjóðs byggingamanna og Lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða.
  • 1995 hófu félagsmenn í Lífeyrissjóði bókagerðarmanna, Lífeyrissjóði Félags garðyrkjumanna og Lífeyrissjóði múrara að greiða til sjóðsins.
  • 1996 hófu félagsmenn í Lífeyrissjóði byggingariðnaðarmanna í Hafnarfirði og Lífeyrissjóði verkstjóra að greiða til sjóðsins.
  • 2002 hófu sjóðfélagar í Lífeyrissjóðnum Hlíf að greiða til sjóðsins.