Umsókn um örorkulífeyri

Vegna umsóknar um örorkulífeyri vinsamlegast hafið samband við starfsfólk lífeyrisdeildar sjóðsins í síma 510 5000 eða með því að senda tölvupóst á lifeyrir[hjá]lifeyrir[punktur]is.

Upplýsingar vegna umsóknar um örorkulífeyri hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum:

Ferill umsóknar:

- Umsóknareyðublað er fyllt út og skilað til sjóðsins ásamt fylgigögnum, sem eru:

- Læknisvottorð - "vegna umsóknar um örorkulífeyri" - frá heimilislækni og/eða sérfræðingi
- Tekjuáætlun - eyðublað hjá sjóðnum
- Staðfest afrit af skattframtölum síðustu fjögurra ára fyrir orkutap til dagsins í dag
- Útskrift úr staðgreiðsluskrá RSK fyrir yfirstandandi ár
- Starfslokavottorð
- Fæðingarvottorð barna

- Umsækjandi fær bréf frá sjóðnum þar sem hann er boðaður í viðtal og skoðun hjá trúnaðarlækni sjóðsins í Borgartúni 30, Reykjavík.

- Trúnaðarlæknir skilar af sér mati á orkutapi til sjóðsins þegar viðtal og skoðun hefur farið fram.

- Umsókn afgreidd hjá sjóðnum og niðurstaða send bréflega til umsækjanda.

 Mat á orkutapi:

- Trúnaðarlæknir metur orkutap með viðtali og skoðun ásamt lestri á gögnum sem fylgja umsókninni.

Um mat á rétti til örorkulífeyris hjá sjóðnum er byggt á samþykktum sjóðsins, en þær ásamt almennum upplýsingum um örorkulífeyri má nálgast á heimasíðu sjóðsins, www.lifeyrir.is . Þar kemur m.a. fram að:

- Minna orkutap en 50% veitir ekki rétt til örorkulífeyris.
- Orkutap þarf að vara/hafa varað í 6 mánuði eða lengur.
- Orkutap miðast fyrstu þrjú árin við það starf sem aðild að sjóðnum tengist, eftir það miðast matið við almenna vinnu.
- Orkutap er metið læknisfræðilega og er þannig óháð ytri aðstæðum, svo sem atvinnuástandi eða félagslegum aðstæðum.
- Trúnaðarlæknir metur hvort og hvenær endurmat á orkutapi fari fram.