Barnalífeyrir samhliða örorkulífeyri
Við örorku sjóðfélaga er barni hans greiddur barnalífeyrir til 18 ára aldurs.
Fósturbörn og stjúpbörn njóta sömu réttinda hafi sjóðfélaginn séð um framfærslu þeirra að mestu eða öllu leyti.
Til að eiga rétt til barnalífeyris við örorku þarf sjóðfélagi að hafa greitt til sjóðsins í a.m.k. 24 af síðustu 36 mánuðum við orkutapið. Barnalífeyrir greiðist forráðamanni barnsins fyrir þess hönd.
Barnalífeyrir er kr. 19.795 kr. í janúar 2012.
Samþykktir sjóðsins gilda við úrskurð barnalífeyris.



