Örorkuvernd á fyrri hluta starfsævinnar

Örorkuverndin er mikilvægust:

  • fyrstu 2-3 árin eftir að komið er út á vinnumarkaðinn,en þann tíma er réttur til örorkulífeyris hjá lífeyrissjóðum mjög takmarkaður 
  • þegar horfið er af vinnumarkaði, t.d. vegna náms og svokallaður framreikningur til örorkulífeyris tapast
  • til þess að mæta langtíma heilsubresti 
Áföll í lífi okkar gera jafnan ekki boð á undan sér og því er skynsamlegt að gera mögulegar fjárhagslegar ráðstafanir á meðan heilsan er í góðu lagi. Sá stuðningur sem lífeyrissjóðir veita sjóðfélögum ef þeir tapa starfsorku er mjög mikilvægur og skiptir oft sköpum í afkomu þeirra sem hljóta örorku snemma á starfsævinni. Kröfur okkar um lífsgæði eru þó stöðugt að aukast og það kallar m.a. á auknar tryggingar fyrir fjárhagslegum áföllum. Þetta á ekki síst við um ungt fólk sem getur tapað stórum hluta ævitekna sinna verði það fyrir varanlegri starfsorkuskerðingu. Þá er ástæða til þess að minna  á að örorkulífeyrir lífeyrissjóða er almennt ekki greiddur fyrstu tvö ár sjóðsaðildar og fari fólk tímabundið af vinnumarkaði, t.d. vegna endurmenntunar, getur komið til skerðingar á örorkulífeyrisrétti. Við slíkar aðstæður er Örorkuverndin sérstaklega góð lausn.