Fjölskyldubætur - eingreiðsla við fráfall

Fjölskyldubætur eru eingreiðslubætur sem greiddar eru við fráfall sjóðfélaga 66 ára og yngri.  Fjölskyldubætur eru hrein viðbót við maka- og barnalífeyrisgreiðslur sjóðsins og hafa þann tilgang að létta undir með nánustu aðstandendum, einkum þegar um fráfall ungra sjóðfélaga er að ræða.

Sameinaði lífeyrissjóðurinn hóf greiðslur fjölskyldubóta árið 1999 og er eini lífeyrissjóðurinn sem býður upp á slíka greiðslu.

Fjölskyldubætur skiptast í tvennt: 

  • Makagreiðsla. Hún nemur 8,5 földum iðgjöldum sem greidd hafa verið til sjóðsins vegna sjóðfélaga síðustu tólf mánuði. Hafi hinn látni verið með 2.400.000 kr. í tekjur síðustu tólf mánuði og iðgjald til sjóðsins hafi verið 12% af launum nemur makagreiðslan 2.448.000 kr.. Hafi hinn látni verið í tveimur störfum og greitt í annan lífeyrissjóð mun greiðslan einungis verða greidd af þeim iðgjöldum sem greidd hafa verið til Sameinaða lífeyrissjóðsins. Við þessa útreikninga verður að taka tillit til að fjárhæðin lækkar um 6% fyrir hvert ár sem sjóðfélagi er eldri en 45 ára við fráfall. Lækkunin verður þó aldrei meiri en 90%.
  • Barnagreiðsla. Hafi hinn látni sjóðfélagi verið yngri en 67 ára og börn hans yngri en 19 ára fá börnin eingreiðslu við fráfall hans. Greiðslan nemur eins mánaða barnalífeyri til hvers barns margfölduðum með fjölda mánaða sem iðgjöld bárust sjóðnum sl. tólf mánuði. Í janúar 2010 er upphæð barnalífeyris 18.333 kr. og greiðslan því allt að 219.996 kr. á barn (12 x 18.333).

Dæmi um fjölskyldubætur vegna fráfalls sjóðfélaga, yngri en 46 ára.

Laun Iðgjöld til sjóðsins
sl. 12 mánuði
Makagreiðsla      Barnagreiðsla m.v.
tvö börn undir 19 ára
Fjölskyldubætur
(maka- og barnagreiðslur)
1.800.000 (150 þús á mán) 216.000 1.836.000 439.992 2.275.992
3.000.000 (250 þús á mán) 360.000 3.060.000 439.992 3.499.992
4.200.000 (350 þús á mán) 504.000 4.284.000 439.992 4.723.992
Tafla síðast uppfærð í janúar 2010.

Fjölskyldubætur eru tekjuskattskyldar, eins og aðrar lífeyrisgreiðslur.

Samþykktir sjóðsins gilda við úrskurð fjölskyldubóta.

 

Umsóknir
Reiknivél
Póstlisti
Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum... meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt... meira
Eingreiðslubætur við fráfall Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við... meira
 Gott að vita