Barnalífeyrir samhliða ellilífeyri.
Ef ellilífeyrisþegi sem hefur greitt til sjóðsins í a.m.k. þrjú af undanfarandi fjórum almanaksárum er orðinn 67 ára og á barn yngra en 18 ára fær hann einnig barnalífeyri sem greiðist til hans ásamt ellilífeyrinum. Fósturbörn og stjúpbörn njóta sömu réttinda hafi sjóðfélaginn séð um framfærslu þeirra að mestu eða öllu leyti a.m.k. frá 62 ára aldri hans.
Barnalífeyrir er kr. 19.795 kr. í janúar 2012.
Samþykktir sjóðsins gilda við úrskurð barnalífeyris.



