Ellilífeyrir

Sjóðfélagi getur hafið töku ellilífeyris milli 65 ára og 70 ára aldurs. 

Mánaðarleg upphæð ellilífeyris hækkar eftir því sem upphaf lífeyristökunnar er dregið, þó ekki eftir að 70 ára aldri er náð. Þannig eru greiðslur ellilífeyris sem hefjast 65 ára 15 % lægri en ef taka lífeyris hefst 67 ára og 17% hærri ef lífeyristaka hefst 69 ára í stað 67 ára.  Sjóðfélagar sjá sín réttindi á yfirlitum sem send eru tvisvar á ári en einnig er hægt að fylgjast með þeim á sjóðfélagavefnum hér á síðunni.

Breyting réttinda við mismunandi upphaf á töku ellilífeyris:

Aldur við
töku ellilífeyris      

Hlutfall
65 ára 85%
66 ára 92%
67 ára 100%
68 ára 108%
69 ára 117%
70 ára 126%

Ellilífeyrir tekur mið af áunnum réttindum og hefur ekkert hámark né lágmark.

Ellilífeyrir er verðtryggður og fylgir mánaðarlegri breytingu á vísitölu neysluverðs.

Ellilífeyrir er greiddur ævilangt.

Eigi sjóðfélagi lífeyrisrétt í öðrum sjóðum hefur starfsfólk Sameinaða lífeyrissjóðsins upplýsingar um hvaða sjóði er að ræða.   

Heimilt er að skipta ellilífeyrisréttindum milli hjóna samkvæmt ákveðnum reglum.

Umsókn um ellilífeyri.

Samþykktir sjóðsins gilda við úrskurð um ellilífeyri.

Flestir eiga einnig rétt til lífeyris hjá Tryggingastofnun ríkisins eftir að 67 ára aldri er náð - sjá nánar á tr.is.

 

Umsóknir
Reiknivél
Póstlisti
Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum... meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt... meira
Eingreiðslubætur við fráfall Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við... meira
 Gott að vita