Réttindi í mörgum sjóðum


Lífeyrisréttindi týnast ekki

Margir eiga lífeyrisréttindi í fleiri en einum sjóði. Því vakna oft spurningar hvort líkur séu á því að réttindi geti glatast. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af því.

Með lífeyrisskrá og sérstöku samkomulagi um samskipti lífeyrissjóða er haldið utan um öll lífeyrisréttindi einstaklinga og nauðsynlegum upplýsingum miðlað á milli sjóða. 

Til þess að útskýra hvernig þetta getur gengið fyrir sig má taka dæmi af sjóðfélaga sem síðast greiðir iðgjöld til Sameinaða lífeyrissjóðsins áður en hann hefur töku lífeyris. Sjóðfélaginn sækir um lífeyri hjá sjóðnum og starfsfólk hans sem hefur aðgang að lífeyrisskránni veitir sjóðfélaga upplýsingar um aðra sjóði þar sem hann er skráður með iðgjöld hjá og sendir jafnframt umsóknina áfram til þessara sjóða. Lífeyrisgreiðslur berast síðan frá sjóðum í samræmi við réttindi í hverju tilviki.