Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna/fólks í staðfestri samvist

Sjóðfélögum er heimilt að skipta ellilífeyrisréttindum.

Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla:

  • Skipting ellilífeyrisréttinda tekur til þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist.
  • Skipting ellilífeyrisréttinda skal fela í sér gagnkvæma skiptingu sem skal vera jöfn, þ.e.a.s. hvort hjóna eða sambúðarfólks skal veita hinu sama hlutfall réttinda sinna. Þess vegna þurfa báðir aðilar að skipta ellilífeyrisréttindum sínum. Heimilt er að framselja til maka allt að helmingi ellilífeyrisréttindanna.
  • Skiptingin skal aðeins taka til áunninna réttinda meðan hjúskapur, óvígð sambúð eða staðfest samvist hefur staðið eða mun standa.
  • Samning um skiptinguna þarf að gera fyrir 65 ára aldur sjóðfélaga.

Hér getur þú nálgast bækling um skiptingu ellilífeyrisréttinda milli hjóna á pdf-formi.

Spurningar og svör.

1. Ég er í óvígðri sambúð og hjónaband er ekki fyrirhugað. Hver er réttarstaða mín gagnvart skiptingu ellilífeyrisréttinda?
Svar: Lögin um skiptinguna taka einnig til þeirra sem eru í óvígðri sambúð eða staðfestri samvist.

2. Getum við hjónin skipt ellilífeyrisréttindum okkar þannig, að maki minn fái 40% af mínum en ég 50% af réttindum hans?
Svar: Nei. Skiptingin á milli aðila þarf að vera jöfn hjá báðum aðilum, þ.e.a.s. hvor maki fær sama hlutfall frá hinum, t.d. ef makinn á að fá 40% af mínum réttindum verður makinn að láta mig fá 40% af sínum réttindum o.s.frv.

3. Get ég eingöngu skipt mínum ellilífeyrisréttindum en maki minn haldið sínum réttindum óskiptum?
Svar: Nei. Eins og fram kemur í svari við spurningu nr. 2, þurfa báðir aðilar að skipta ellilífeyrisréttindunum, ef á annað borð hefur verið ákveðið að skipta þeim.

4. Ef maki minn hefur aldrei greitt í lífeyrissjóð. Get ég þá skipt mínum ellilífeyrisréttindum þannig að makinn fái ákveðið hlutfall af mínum réttindum til sín?
Svar: Já. Skiptingin skal vera gagnkvæm, eins og áður segir, jafnvel þó að maki þinn eigi ekki nein lífeyrisréttindi.

5. Getum við hjónin skipt réttindum þannig að hvort hjóna fái 60% af réttindum hins?
Svar: Nei. Ekki er heimilt að skipta eða framselja meira en sem nemur helmingi ellilífeyrisréttinda eða að hámarki 50%.

6. Við hjónin fáum bæði greiddan ellilífeyri hjá lífeyrissjóðum en höfum nú ákveðið að skipta ellilífeyrisgreiðslunum á milli okkar til helminga. Ef maki minn fellur frá, fæ ég þá til baka þann hluta réttindanna sem ég hef skipt?
Svar: Já. Við fráfall maka fær sjóðfélaginn allan ellilífeyrinn á ný, auk þess sem hann hefur öðlast rétt til makalífeyris frá þeim lífeyrissjóði, sem makinn greiddi iðgjöld til. Ef þú hins vegar fellur frá á undan maka þínum, þá fær hann ellilífeyri sinn óskiptan en sá hluti ellilífeyrisgreiðslnanna sem komu frá þér falla niður. Maki þinn á hins vegar rétt á makalífeyri vegna þeirra iðgjalda sem þú hefur greitt til viðkomandi lífeyrissjóðs.

7. Nú ber að skipta þegar áunnum réttindum fyrir 65 ára aldur. Ég er 62 ára og maki minn er 67 ára. Getum við skipt áunnum réttindum?
Svar: Nei. Það þarf að skipta réttindunum fyrir 65 ára aldur beggja hjónanna. Í þessu tilviki getur þú ekki skipt áunnum réttindum þínum, þar sem makinn er komin yfir 65 ára aldurinn. Skipting ellilífeyrisréttindanna þarf að vera jöfn og gagnkvæm hjá báðum aðilum. Í þessu dæmi getur skiptingin ekki orðið gagnkvæm og er því ekki hægt að skipta ellilífeyrisréttindunum.

8. Við hjónin höfum verið í sambúð og síðan í hjúskap í samtals 6 ár, en bæði höfum við greitt í lifeyrissjóði í 10 ár. Getum við skipt ellilífeyrisréttindunum sem áunnust þessi 10 ár?
Svar: Nei. Skiptingin nær aðeins til þeirra réttinda sem áunnust meðan hjúskapur, óvígð sambúð eða staðfest samvist hefur staðið eða stóð, þ.e.a.s. heimilt er í þessu tilviki að skipta réttindum sem áunnust síðustu 6 árin.

9. Ég og maki minn höfum ákveðið að skilja. Getum við skipt þegar áunnum réttindum okkar við skilnaðinn?
Svar: Já. Það er ekkert á móti því að skipta þegar áunnum réttindum við skilnað, sem áunnust í hjúskap eða sambúð, enda sé að öðru leyti fullnægt öðrum skilyrðum um aldur og heilsufar.

10. Ég og maki minn höfum þegar skipt áunnum ellilífeyrisréttindum okkar til helminga. Nú deyr maki minn á undan mér. Hver er réttarstaða mín?
Svar: Þú hefur afsalað þér helmingnum af áunnum ellilífeyrisréttindum þínum til frambúðar en færð á móti helminginn af áunnum ellilífeyrisréttindum maka þíns. Um greiðslu makalífeyris fer hins vegar eftir samþykktum lífeyrissjóðsins sem maki þinn greiddi til. Athugið að makalífeyrir þinn er óbreyttur, hann hvorki hækkar eða lækkar, þó búið sé að skipta áunnum ellilífeyrisréttindum.

11. Hver er réttarstaða maka míns, ef ég dey á undan honum, eftir að hafa skipt þegar áunnum réttindum til helminga?
Svar: Maki þinn fær greiddan makalífeyri eftir þig úr sjóðnum, en auk þess fær hann sinn helming af þegar áunnum ellilífeyrisréttindum þínum.

12. Ég hef þegar skipt áunnum ellilífeyrisréttindum mínum. Hver er réttarstaða mín ef ég verð fyrir orkutapi og verð öryrki?
Svar: Skipting ellilífeyrisréttinda hefur ekki í för með sér neina breytingu á fjárhæð örorkulífeyris hjá sjóðnum.

13. Ég og maki minn höfum gert samkomulag um skiptingu ellilífeyrisréttinda í framtíðinni og tilkynnt það sjóðnum. Nú hef ég skipt um starf og lífeyrissjóð. Þarf ég að tilkynna þessa skiptingu til þess lífeyrissjóðs sem ég hef nú nýlega hafið greiðslu iðgjalda til?
Svar: Já. Ef um er að ræða samkomulag um skiptingu framtíðarréttinda bera aðilar hvor um sig ábyrgð á því að kynna það fyrir þeim lífeyrissjóðum sem þeir kunna að hefja greiðslu iðgjalda til síðar.

14. Get ég sagt upp samkomulaginu um skiptingu ellilífeyrisréttinda milli hjóna?
Svar: Þegar um er að ræða skiptingu á núverandi ellilífeyrisgreiðslum og framtíðarréttindum, þá getur hvor aðili um sig sagt samkomulaginu upp með þriggja mánaða fyrirvara. Skipting þegar áunninna ellilífeyrisréttinda er hins vegar ekki afturkallanleg.

15. Ber mér að greiða skatt af öllum þeim greiðslum vegna ellilífeyrisréttinda, sem ég hef aflað mér, þó að ég hafi skipt þessum réttindum og þar með greiðslum milli mín og maka míns?
Svar: Nei. Ellilífeyrisgreiðslur skattleggjast í öllum tilvikum hjá viðtakanda greiðslnanna.