Fjárfestingarstefna og ávöxtun sjóðsins

Sameinaði lífeyrissjóðurinn er einn af stærstu lífeyrissjóðum landsins. Eignir hans námu 105,4 milljörðum í árslok 2010. Árið 2010 var nafnávöxtun sjóðsins 4,6% sem svarar til 2% raunávöxtunar. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eign var 0,12%. Rekstur sjóðsins er óháður verðbréfafyrirtækjum en leitast er við að skipta við þau verðbréfafyrirtæki innlend og erlend sem best og öruggust kjör bjóða á hverjum tíma.

Verðbréfaeign

Að frátöldum húsnæðislánum til sjóðfélaga stundar sjóðurinn ekki lánastarfsemi. Fjármunum sjóðsins er hins vegar ráðstafað í samræmi við samþykkt sjóðsins og fjárfestingarstefnu, sem kveðið er á um í samþykktum sjóðsins. Fjármunum er eingöngu ráðstafað til verðbréfakaupa fyrir milligöngu löggiltra verðbréfafyrirtækja. Sjóðurinn kaupir ekki verðbréf af sjóðfélögum eða fyrirtækjum, sem greiða til sjóðsins og stundar ekki bankastarfsemi. Sjóðurinn framfylgir fyrirfram ákveðinni fjárfestingarstefnu sem miðast við að tryggja öryggi og dreifingu áhættu til lengri tíma litið.

Raunávöxtun 2003-2010

Meðal ársraunávöxtun 1992-2010 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
  3,5%   7,2%   6,7%  12,0%  11,8%   0,0% -22,5% -1,4% 2,0%

Fjárfestingarstefna tryggingadeildar Sameinaða lífeyrissjóðsins árið 2012:

Tölur eru í hlutfalli af hreinni eign til greiðslu lífeyris Markmið 
um eigna-
samsetningu

Vik-
mörk*)     

Gengisbundin
verðbréf
Vik-
mörk      
Óskráð
verðbréf
Vik-
mörk    
Innlán í bönkum og sparisjóðum   1%  0-15%   0% 0-2%    
Ríkisvíxlar, ríkisskuldabr. og skuldabr. með ábyrgð ríkissjóðs 39% 25-85%  1% 0-5%   0% 0-2%
Skuldabréf bæjar- og sveitarfélaga   5%  0-25%   0% 0-2%   0% 0-4%
Skuldabréf og víxlar banka, sparisj. og annarra lánastofnana   2%  0- 8%   1% 0-5%   2% 0-4%
Fasteignaveðtryggð skuldabréf 17%  5-30%   0% 0%

 0%

 
Hlutabréf 32% 20-45% 23% 10-40% 11% 0-20%
Önnur verðbréf   4%  0-15%   1%   0-5%   2% 0-5%
Samtals: 100%   26%   15%  

*) Vikmörk þýða hámarks- og lágmarksfjárfestingu í viðkomandi flokki fjárfestinga.

Hér að neðan má nálgast pdf-skjöl með fjárfestingarstefnunni og áhersluatriðum við framkvæmd hennar:
Fjárfestingarstefna 2012 og markmið um samsetningu eigna í tryggingadeild. (pdf.skjal)
Áhersluatriði er varða framkvæmd fjárfestingarstefnu tryggingadeildar á árinu 2012. (pdf.skjal)

Fjárfestingarstefnan framkvæmist í samræmi við gildandi lög og samþykktir sjóðsins á hverjum tíma. 

Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins á aðild að reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (Principles for Responsible Investment). Reglurnar sem eru leiðbeinandi fyrir stofnanafjárfesta um allan heim fela í sér að þátttakendur skuldbinda sig til að taka tillit til umhverfislegra og félagslegra þátta við fjárfestingar sínar, auk þess sem lögð er áhersla á góða stjórnarhætti fyrirtækja sem fjárfest er í.