Hlutverk og saga
Hlutverk
Hlutverk Sameinaða lífeyrissjóðsins er að tryggja öryggi sjóðfélaganna, maka þeirra og barna í framtíðinni. Sjóðurinn greiðir sjóðfélögum elli- og örorkulífeyri og mökum látinna sjóðfélaga fjölskyldulífeyri. Samtrygging sjóðfélaga um örorku- og fjölskyldulífeyri tryggir sjóðfélögum og mökum þeirra lífeyri við óvænt áföll.
Starfsleyfi
Sjóðurinn starfar samkvæmt samþykktum sem samþykktar eru á ársfundi hans og síðan staðfestar af fjármálaráðuneytinu í samræmi við lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Samkvæmt þessum lögum þurfa allir lífeyrissjóðir að fá starfsleyfi og fékk Sameinaði lífeyrissjóðurinn starfsleyfi 4. mars 1999.Sameiningar
Sameinaði lífeyrissjóðurinn hóf starfsemi 1. júní 1992 við sameiningu Lífeyrissjóðs byggingamanna og Lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða og fór endanleg sameining þeirra sjóða fram 1. apríl 1994. Hinn 1. janúar 1995 hófu félagsmenn í Lífeyrissjóði bókagerðarmanna, Lífeyrissjóði Félags garðyrkjumanna og Lífeyrissjóði múrara að greiða til sjóðsins. Frá 1. janúar 1996 greiddu félagsmenn í Lífeyrissjóði byggingariðnaðarmanna í Hafnarfirði og Lífeyrissjóði verkstjóra til sjóðsins.Endanleg sameining þessara fimm sjóða við Sameinaða lífeyrissjóðinn fór fram 1. apríl 1996 miðað við tryggingafræðilegt uppgjör á sjóðunum hinn 31. desember 1995.
Þann 1. janúar 2002 hófu sjóðfélagar í Lífeyrissjóðnum Hlíf að greiða til Sameinaða lífeyrissjóðsins. Ársfundir sjóðanna samþykktu sameininguna og fór hún fram á grundvelli tryggingafræðilegs mats á stöðu sjóðanna 31. desember 2001.

Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út
Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum...
meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt...
meira
Eingreiðslubætur við fráfall
Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við...
meira






