Umsókn og gögn

Rafræn umsókn.

Eftirtalin gögn skulu fylgja lánsumsókn:

  • Veðbókarvottorð þeirrar eignar sem á að veðsetja.
  • Fasteignamat eignarinnar.
  • Brunabótamat eignarinnar.

og einnig eftir atvikum:

  • Afrit kaupsamnings ef um lán til kaupa á húsnæði er að ræða.
  • Matsverð löggilts fasteignasala ef sjóðurinn óskar eftir.
  • Ef á undan veðrétti sjóðsins eru önnur áhvílandi lán, skulu fylgja umsókninni nýjustu greiðsluseðlar viðkomandi lána, sem sýna eftirstöðvar uppreiknaðar með verðbótum og vöxtum.

Fasteignamat og brunabótamat eigna fást á heimasíðu Fasteignamats ríkisins og prentar starfsfólk sjóðsins þau út eftir því sem óskað er. Einnig er hægt að fá veðbókarvottorð skrifað út hjá sjóðnum fyrir flestar eignir - kostnaður kr. 1.500.  

Eyðublöð vegna breytinga á lánum