Vextir og kostnaður
Almenn lánskjör
- Ekkert hámark er á lánsfjárhæð ef hún er innan veðmarka. Hámarks veðsetning er 65% af verðmati og heildarveðsetning skal aldrei fara yfir 100% af brunabótamati.
- Lágmarkslán er kr. 400.000.
- Heimilt að greiða upp sjóðfélagalán hvenær sem er án uppgreiðslugjalds.
- Lánstíminn er 5-40 ár að vali lántaka.
- Gjalddagar á ári eru 4 – 12 að vali lántaka
- Lánin eru verðtryggð m.v. vísitölu neysluverðs.
- Lántökugjald er 1% á sjóðfélagalánum.
- Lántakendur greiða einnig innheimtukostnað af afborgunum skuldabréfa
Lánaflokkar
Almenn sjóðfélagalán
- Vextir eru 3,8% frá 1. janúar 2012.
- Val er um það hvort lán er með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum (annuitet).
Vextir taka breytingum skv. ákvörðun stjórnar sjóðsins og eru endurskoðaðir a.m.k. 4 sinnum á ári; þann 15. janúar, 15. apríl, 15. júlí og 15. október ár hvert.
Sjóðfélagalán með 4,2% föstum vöxtum
- Eingöngu lán á 1. veðrétt.
- Val er um það hvort lán er með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum (annuitet).
- Uppfylli lántaki ekki lengur skilyrði um greiðslu til grunndeildar eða séreignardeildar sjóðsins eða sé lánið yfirtekið af nýjum skuldara hækka vextir og verða breytilegir og hinir sömu og á almennum sjóðfélagalánum.
Gjaldtaka vegna þinglýsingar og stimplunar skuldabréfa greiðist til ríkissjóðs.
- Fyrir þinglýsingu allra skjala ber í flestum tilfellum að greiða þinglýsingargjald kr. 2.000 (mismunandi upphæð eftir sýslumannsembættum).
- Auk þess greiðist stimpilgjald í ríkissjóð 1,5% af fjárhæð veðskuldabréfs. Frá 1. júlí 2008 er þó ekki greitt stimpilgjald vegna veðskuldabréfa sem útgefin eru vegna fjármögnunar á fyrstu íbúð einstaklings (sjá nánar).
- Fyrir veðbókarvottorð greiðist almennt kr. 1.500.
- Skjöl til þinglýsingar skal afhenda í tvíriti (frumriti og afriti á löggiltum skjalapappír).
- Þinglýsing skjala tekur yfirleitt tvo daga.
Allar nánari upplýsingar um þinglýsingu skjala er að finna hér.



