Helstu lánareglur

 Hverjir eiga rétt á lánum ?

  • Lán eru veitt til virkra sjóðfélaga og rétthafa séreignarsparnaðar, þ.e. þeirra sem greiða reglulega til sjóðsins.
  • Sjóðfélagi/rétthafi þarf að hafa greitt iðgjöld samfellt til sjóðsins síðustu 6 mánuði.
  • Sjóðfélagi, sem sannanlega hefur stundað nám eða dvalist erlendis hefur lánsrétt, enda uppfylli hann skilyrði til lánveitingar að öðru leyti.
  • Lífeyrisþegar geta átt kost á láni frá sjóðnum, enda hafi þeir haft lánsrétt sbr. framangreint þegar taka lífeyris hófst og sanni greiðslugetu sína með greiðslumati frá viðskiptabanka sínum.

Veð: 

  • Lán eru eingöngu veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði, sem umsækjandi á eða er að kaupa. Ekki er veitt lán með lánsveði.  
  • Lán sem veitt eru, að viðbættum forgangsveðskuldum, uppfærðum með vöxtum og verðbótum, mega ekki vera hærri en sem nemur 65% af  fasteignamati eða markaðsvirði eignarinnar, það sem lægra er, þó ekki umfram 100% af samanlögðu brunabótamati og lóðarmati.
  • Við mat á markaðsvirði er höfð hliðsjón af kaupsamningi, fasteignamati, og ef sjóðurinn telur ástæðu til sjálfstæðs mats á eigninni frá löggiltum fasteignasala sem tilnefndur er af sjóðnum. Slíkt mat fasteignasala er á kostnað lántaka.  
  • Sérstakrar varúðarsjónarmiða er gætt varðandi húsnæði sem talið er að geti verið erfitt í endursölu.
  • Ekki er veitt lán með veði í eign sem hefur lægra fasteignamat en kr. 4.000.000. Ekki er lánað út á ósamþykktar íbúðir eða íbúðir í byggingu sem ekki hafa fokheldisvottorð eða eru brunatryggðar.

Annað:

  • Sjóðfélagar/rétthafar sem sjálfir standa skil á iðgjöldum sínum til sjóðsins þurfa að vera skuldlausir við sjóðinn þegar lánsumsókn berst.
  • Skilyrði lánveitingar til þeirra sem þegar eru með lán hjá sjóðnum er að lánið sé í skilum.
  • Sjóðurinn áskilur sér rétt til að óska eftir skuldayfirliti og greiðslumati lánastofnunar vegna umsóknarinnar. Sé skuldastaða með þeim hætti að vafi leiki á greiðsluhæfi lántaka getur sjóðurinn lækkað umbeðna lánsfjárhæð eða hafnað lánveitingu.
  • Lántakendur greiða lántökugjald skv. gjaldskrá sjóðsins svo og kostnað við útvegun gagna, stimplun, þinglýsingu, verðmat veðsettra eigna og greiðslumat.
  • Lántakendur sjá sjálfir um þinglýsingu skuldabréfa.

 

Bæklingur um sjóðfélagalánMaí 2007

Lánareglur Sameinaða lífeyrissjóðsins 1. janúar 2012 á pdf-formi.

- Lög um ábyrgðarmenn, nr. 32/2009 -