Hvað er Örorkuvernd?
Örorkuvernd er vátrygging sem Sameinaði lífeyrissjóðurinn býður í samvinnu við Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) til rétthafa í séreignarsparnaði hjá sjóðnum sem eru á aldrinum 18-44 ára. Ef örorka er metin meiri en 50% vegna sjúkdóms eða slyss greiðast bætur í einu lagi til sjóðsins sem ráðstafar eigninni strax inn á séreignarreikning viðkomandi rétthafa. Bæturnar greiðast síðan til rétthafans samkvæmt reglum um séreignarsparnað.



