Mikilvæg ákvörðun

Vegna mótframlags launagreiðanda og hagstæðrar skattlagningar stenst enginn annar sparnaður samanburð við séreignarsparnað. Til lengri tíma litið munar milljónum. Þeir nýta sér ekki þennan möguleika til séreignarsparnaðar eru því í raun að missa af umsömdum kjarabótum.

Best er að útskýra kosti séreignarsparnaðar með dæmi:

Í dæminu er miðað við 200.000 kr. mánaðarlaun og 4% eigið framlag í séreignarsparnað.

Þú leggur fyrir 4% 8.000 kr.
Atvinnurekandi 2% mótframlag 4.000 kr.
Samtals í sparnað á mánuði 6% 12.000 kr.

  • Þú leggur fyrir sjálf(ur) 4% en færð með mótframlagi atvinnurekanda alls 6% af mánaðarlaunum í séreignarsparnað á mánuði.
  • Skattfrestun: Hafir þú á bilinu 200.000 -650.000 kr. skattskyldar tekjur á mánuði lækka útborguð laun einungis um 4.790 kr. m.v. 40,12% skattprósentu. 
  • Í séreign þína leggjast því 12.000.- kr. á mánuði, en ráðstöfunartekjur þínar lækka aðeins um 4.790.- kr.. Einnig má líta á þetta þannig að sá sem hættir séreignarsparnaði skv. þessum forsendum fær 4.790 krónum meira útborgað en hættir um leið 12.000 króna sparnaði !  

Eins og sést á þessu dæmi er séreignarsparnaður sparnaðartækifæri sem enginn ætti að missa af.

Kostir séreignarsparnaðar Sameinaða lífeyrissjóðsins eru ótvíræðir.

  • Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur né erfðaskattur.
  • Séreignarsparnaður skerðir hvorki barna- né vaxtabætur.
  • Útgreiðsla séreignarsparnaðar skerðir ekki ellilífeyri almannatrygginga.
  • Staðgreiðsla tekjuskatts af séreignarsparnaði frestast þar til að útborgun kemur.
  • Séreignarsparnaður erfist að fullu og er ekki aðfararhæfur, lendi viðkomandi í fjárhagserfiðleikum.
  • Val er um að ávaxta eign samkvæmt Aldursleið, þar sem áhætta fjárfestinga fylgir aldri eða í einstöku safni fjárfestinga sem Aldursleiðin byggist á. Einnig býður sjóðurinn Innlánsleið, þar sem séreignin ávaxtast eingöngu í innlánsreikningum með ríkisábyrgð.
  • Hægt er að skipta um ávöxtunarleið án kostnaðar.

Umsókn um séreignarsparnað.

Þú getur reiknað út þinn séreignarsparnað hér.


 

Umsóknir
Reiknivél
Póstlisti
Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum... meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt... meira
Eingreiðslubætur við fráfall Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við... meira
 Gott að vita