Makalífeyrir

Við andlát sjóðfélaga öðlast maki hans rétt til makalífeyris frá sjóðnum. Maki sjóðfélaga telst vera sá eða sú sem var í hjúskap eða óvígðri sambúð sem jafna má til hjúskapar við andlát sjóðfélagans. 

Upphæð makalífeyris ákvarðast af áunnum réttindum sjóðfélagans og framreiknuðum réttindum til 65 ára aldurs, ef skilyrði til þess eru uppfyllt.

Makalífeyrir greiðist alltaf í a.m.k. 5 ár.

  • Fullur makalífeyrir greiðist alltaf í þrjú ár og a.m.k. 50% af fullum makalífeyri í 2 ár.
  • Fullur makalífeyrir greiðist þar til yngsta barn sem sjóðfélagi hefur framfært með eftirlifandi maka sínum hefur náð 22 ára aldri
  • Fullur makalífeyrir greiðist ef maki sjóðfélaga er öryrki og yngri en 67 ára
  • Makalífeyrir greiðist einnig áfram ef maki sjóðfélaga er fæddur fyrir 1945.  Þá er greiddur skertur makalífeyrir eftir ákveðnum reglum, nema maki sjóðfélaga sé fæddur fyrir 1925.

Samþykktir sjóðsins gilda við úrskurð makalífeyris.