Örorkulífeyrir
Örorkulífeyrir er í eðli sínu afkomutrygging fyrir sjóðfélaga. Verði sjóðfélagi fyrir missi tekna vegna orkutaps af völdum slyss eða sjúkdóms sem metið er 50% eða meira er greiddur örorkulífeyrir, enda séu önnur skilyrði fyrir greiðslunni uppfyllt.
Fyrstu þrjú árin miðast örorkumat aðallega við vanhæfni sjóðfélagans til að gegna því starfi sem hann hefur gegnt og aðild hans að sjóðnum er tengd. Eftir þann tíma miðast örorkumat við vanhæfni sjóðfélagans til almennra starfa.
Samanlagður örorkulífeyrir og barnalífeyrir getur aldrei orðið hærri en tekjumissir vegna orkutapsins. Til viðmiðunar eru teknar tekjur síðustu þriggja almanksára fyrir orkutapið.
Hvað ákvarðar upphæð örorkulífeyris?
- Áunnin réttindi, sem ráðast af þeim greiðslum sem sjóðfélagi hefur greitt í sjóðinn.
- Framreikningur, sem metur framtíðartekjutap sjóðfélaga.
- Hlutfall orkutaps.
Til að sjóðfélagi eigi rétt til framreiknings þarf hann að hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. þrjú af síðustu fjórum almanaksárum, að lágmarki 30.000 kr. hvert þessara þriggja ára. Sjóðfélagi verður einnig að hafa greitt til sjóðsins í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum fyrir orkutapið.
Aðrar meginreglur vegna réttar til örorkulífeyris:
- Sjóðfélagi þarf að hafa greitt í lífeyrissjóð í 24 mánuði til að eiga rétt á örorkulífeyri.
- Örorkulífeyrir greiðist ekki fyrstu 3 mánuðina eftir orkutap.
- Til að eiga rétt á örorkulífeyri þarf sjóðfélagi að hafa orðið fyrir orkutapi, sem nemur 50% eða meira og orkutap þarf að vara lengur en 6 mánuði.
- Hægt er að setja það sem skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris að sjóðfélagi fari í endurhæfingu sem bætt geti heilsufar hans.
Við ákvörðun um rétt til örorkubóta er byggt á læknisfræðilegum upplýsingum sem fylgja umsókn sjóðfélagans um örorkubætur, niðurstöðum trúnaðarlæknis sjóðsins (í flestum tilvikum eftir viðtal eða skoðun) auk umsóknar og fylgigagna hennar sem sjóðfélagi skilar inn.
Samþykktir sjóðsins gilda við úrskurð örorkubóta.
ÖRORKUVERND:
Eins og hér kemur fram að ofan er ekki réttur til örorkulífeyris fyrstu 24 mánuðina og framreikningur er háður skilyrðum um stöðugar iðgjaldagreiðslur. Til þess að mæta tímabilum þegar örorkulífeyrisréttindin eru takmörkuð en einnig til þess að bæta við verndina á fyrri hluta starfsævinnar býðst þeim sem eru í séreignarsparnaði hjá sjóðnum að sækja um Örorkuvernd.



