Endurskoðunarnefnd skipuð
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur skipað Harald Þór Ólason, formann stjórnar sjóðsins, Georg Pál Skúlason, stjórnarmann og Þorkel Sigurlaugsson, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, í endurskoðunarnefnd sjóðsins. Endurskoðunarnefnd starfar samkvæmt lögum um ársreikninga en þar segir m.a. um hlutverk nefndarinnar:
,, Endurskoðunarnefnd skal meðal annars hafa eftirfarandi hlutverk án tillits til ábyrgðar stjórnar, stjórnenda eða annarra á þessu sviði:
1. Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila
2. Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits einingarinnar, innri endurskoðun, ef við á, og áhættustýringu.
3. Eftirlit með endurskoðun ársreiknings og samstæðureiknings einingarinnar.
4. Mat á óhæði endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis og eftirlit með öðrum störfum endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis.
5. Setja fram tillögu til stjórnar um val á endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki. "





Fréttir


