17. febrúar 2009

Frumvarp: Tímabundin breyting á séreignarsparnaði


Rétthafar séreignarsparnaðar munu geta tekið út allt að 1 milljón króna af inneign sinni, óháð aldri og öðrum núgildandi takmörkunum, ef stjórnarfrumvarp sem birt var á vef Alþingis í dag verður að lögum. Samkvæmt frumvarpinu verður þetta heimilt á tímabilinu 1. mars 2009-1. október 2010 og dreifist útborgunin á 9 mánuði, sem þýðir tæplega 70.000 krónur á mánuði eftir staðgreiðslu skatta miðað við hámarksútborgun.  Útborgunin mun ekki skerða barnabætur, vaxtabætur né atvinnuleysisbætur verði frumvarpið óbreytt að lögum.

Í athugasemdum með frumvarpinu segir m.a. að þessi leið sé fyrst og fremst hugsuð til að koma til móts við þá sem eiga í tímabundnum fjárhagserfiðleikum, t.d. vegna atvinnuleysis, án þess þó að vera skilyrði fyrir útborgun. ,,Hins vegar má gera ráð fyrir að þessi kostur höfði fyrst og fremst til þeirra sem eiga í einhverjum fjárhagsvandræðum, í ljósi þess hversu verðmætt sparnaðarform séreignarsparnðurinn er fyrir velflesta",  segir ennfremur í athugasemdum með frumvarpinu. Og til hvatningar þeim er hafa svigrúm til áframhaldandi sparnaðar er í frumvarpinu lagt til að draga megi allt að 6% framlag í séreignarsparnað frá tekjuskattsstofni á tímabilinu 1. mars 2009-1.október 2010, en hámarkið er nú 4%.

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997...,nr. 45/1987, ..nr. 90/2003.. nr.54/2006... með síðari breytingum.

Staða frumvarpsins:  Á dagskrá Alþingis mánudaginn 9. mars, til 3. umræðu. 

Umsóknir
Reiknivél
Póstlisti
Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum... meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt... meira
Eingreiðslubætur við fráfall Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við... meira
 Gott að vita