Úrræði vegna greiðsluvanda
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur samþykkt að taka upp leiðbeinandi vinnureglur sem samdar voru af vinnuhópi á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða vegna þeirra sjóðfélaga sem lenda í greiðsluvanda vegna efnahagsástandsins og eru með sjóðfélagalán hjá sjóðnum. Unnið er að nánari útfærslu reglnanna hjá sjóðnum sem kynntar verða hér á heimasíðunni þegar þær liggja fyrir. Í þessu samhengi er einnig rétt að minna á að samþykkt hafa verið ný lög á Alþingi um greiðslujöfnun fasteignaveðlána, en þau lög ná m.a. til lífeyrissjóða. Þeir sjóðfélagar sem sjá að í óefni stefni í þessum efnum er hvattir til að hafa samband við sjóðinn.
Greinargerð starfshóps Landssamtaka lífeyrissjóða
Frétt um greiðslujöfnun fasteignaveðlána á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða





Fréttir


