Vel sóttur fundur um stöðu Sameinaða lífeyrissjóðsins
Fjölmenni var á kynningarfundi sem stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins efndi til fyrir sjóðfélaga á Grand Hótel í kvöld en þar var farið yfir rekstur og afkomu sjóðsins það sem af er árinu. Þorbjörn Guðmundsson formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins og Kristján Örn Sigurðsson framkvæmdastjóri sjóðsins fóru yfir stöðu og rekstur sjóðsins en Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða fjallaði um áhrif fjármálakreppunnar á rekstur lífeyrissjóðanna í landinu.
Undanfarið hefur verið unnið að því, í samstarfi við löggilta endurskoðendur, að meta þau áhrif sem yfirstandandi fjármálakreppa hefur haft á eignir
sjóðsins og voru niðurstöður þeirrar úttektar kynntar á fundinum. Samkvæmt þeim var nafnávöxtun tryggingadeildar sjóðsins neikvæð um 12,9% fyrstu 10 mánuði ársins 2008 og áætlað er að skuldbindingar umfram eignir sjóðsins hafi verið 11,3% í lok október síðast liðinn. Á fundinum kom fram að of snemmt er að kveða upp úr um hvort grípa þurfi til lækkunar lífeyris og réttinda um næstu áramót en lögum samkvæmt ber lífeyrissjóðum að grípa til ráðstafana ef munur á eignum og skuldbindingum er meiri en 10%.
Á fundinum kom fram að til að mæta áætluðu tapi á skuldabréfaeign séreignardeildar sjóðsins var gerð 16,8% varúðarniðurfærsla á skuldabréfaeigninni. Ekki er um endanlega afskrift á þessum eignum að ræða heldur verða þær endurmetnar þegar fyrir liggur að hvaða marki skuldabréf í bönkum og tengdum félögum endurheimtast. Að teknu tilliti til varúðarfærslunnar er um neikvæða nafnávöxtun að ræða hjá fimm algengustu ávöxtunarleiðum í séreignarsparnaði sjóðsins og er ávöxtun í þeim á bilinu -1,5% til -4% frá upphafi árs 2008 til 17. nóvember síðast liðinn.
Á fundinum kom fram að þar til aðstæður á fjármálamörkuðum skýrast verður haldið áfram að ráðstafa öllum nýjum iðgjöldum séreignardeildar á innlánsreikninga sem njóta ríkisábyrgðar.
![]() |
![]() |
| Georg Páll Skúlason, fundarstjóri. |
Hrafn Magnússon, |
![]() |
![]() |
| Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri sjóðsins. | Þorbjörn Guðmundsson, formaður stjórnar sjóðsins. |





Fréttir






