10. nóvember 2008
Aukin þægindi fyrir launagreiðendur við iðgjaldaskil
Nýr og öflugur launagreiðendavefur hefur verið opnaður hér á heimasíðu sjóðsins. Á vefnum er hægt að ganga frá skilagreinum vegna lífeyrisiðgjalda og félagsgjalda á skjótvirkan og auðveldan hátt ásamt því að fá góða yfirsýn um skil og greiðslur iðgjalda. Þá er meðal nýjunga að launagreiðandi getur stofnað kröfu um greiðslu í eigin heimabanka. Bréf með upplýsingum um nýja vefinn og veflykil að honum hefur verið sent út til allra launagreiðenda sem hafa staðið skil á iðgjöldum til sjóðsins á þessu ári. Launagreiðendur eru eindregið hvattir til þess að nýta sér kosti þess að senda skilagreinar sínar til sjóðsins í gegnum nýjan launagreiðendavef.

Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út
Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum...
meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt...
meira
Eingreiðslubætur við fráfall
Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við...
meira




Fréttir


