5. maí 2008

Ársfundur 2008


Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 14. maí 2008 kl. 16.00 á Hilton Reykjavík Nordica hotel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.

 

Auk venjulegra ársfundarstarfa verður fjallað um starfsendurhæfingu. Sérstakur gestur fundarins verður Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem mun halda erindi um nýjan endurhæfingarsjóð, sem stofnaður verður á grundvelli yfirlýsingar aðila vinnumarkaðarins við kjarasamningagerð í vetur.   

 

Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar og rétthafar í séreignarsparnaði rétt til setu á fundinum.

 

Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á að kynna sér ársreikning sjóðsins fyrir fundinn er bent á að hægt er að nálgast hann hér að neðan, ásamt dagskrá fundarins og nýjasta fréttabréfi sjóðsins. 

 

  

Ársskýrsla 2007  

 

Dagskrá ársfundar 2008

 

Fréttabréf, maí 2008

 

Umsóknir
Reiknivél
Póstlisti
Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum... meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt... meira
Eingreiðslubætur við fráfall Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við... meira
 Gott að vita