Eignir jukust um 8.200 milljónir króna árið 2007. Nafnávöxtun 5,9%.
Rekstur Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur gengið mjög vel undanfarin ár og er staða hans sterk þrátt fyrir óhagstæða þróun hlutabréfamarkaða á síðasta ári. Eignir sjóðsins við áramót námu 96,6 milljörðum króna og höfðu hækkað um 8,2 milljarða milli ára eða um 9,3%. Þannig voru eignir umfram áfallnar skuldbindingar 6.226* milljónir króna eða 6,9%* og eignir umfram heildarskuldbindingar voru 2,5%* í lok árs 2007. Á síðastliðnu ári var nafnávöxtun eigna sjóðsins 5,9% sem er jafnt hækkun vísitölu neysluverðs á árinu. Ávöxtun síðustu 5 ára má sjá hér að neðan, en meðal raunávöxtun þessara ára er 7,5%.
5,9% 0,0% 19,6% 11,8% 16,7% 12,0% 10,9% 6,7% 10,1% 7,2%
Ár
Nafnávöxtun
Raunávöxtun
2007
2006
2005
2004
2003
Inneignir í séreignasparnaði námu alls 3,8 milljörðum króna í árslok og var ávöxtun einstakra leiða í takt við þróun markaða á árinu og komu þær leiðir sem höfðu meira vægi skuldabréfa almennt betur út en þær sem vægi hlutabréfa var hátt. Tæplega 80% eigna í séreignarsparnaði sjóðsins eru í innlendum skuldabréfum.
|
|
2007 |
Breyting frá 2006 |
| Heildariðgjöld | 5.137 millj.kr. |
+17,0% |
| Heildarlífeyrisgreiðslur | 2.324 millj.kr. |
+10,7% |
| Fjárfestingartekjur umfram fjárfestingargjöld | 5.504 millj.kr. |
-61,4% |
| Rekstrarkostnaður | 119 millj.kr. |
+19,8% |
| Rekstrarkostnaður sem hlutfall eigna |
0,12% |
+9,6 |
| Hrein eign til greiðslu lífeyris | 96.573 millj.kr. |
+9,3% |
Í samræmi við breytingar á samþykktum sjóðsins sem ákveðnar voru á síðasta ársfundi voru grunndeildir sjóðsins, stigadeild og aldurstengd deild sameinaðar um sl. áramót í eina tryggingadeild. Vegna sameiningarinnar voru áunnin réttindi í aldurstengdri deild hækkuð um 10,75%*, en allir greiðandi sjóðfélagar áttu a.m.k. hluta réttinda sinna þar.
Ársskýrsla 2007 verður aðgengileg hér á heimasíðunni strax og hún verður tilbúin.
*) Breyttar tölur frá því sem áður var birt vegna leiðréttingar á útreikningi á stöðu grunndeilda.





Fréttir


