6. nóvember 2007
Stjórn og varastjórn sjóðsins ásamt framkvæmdastjórn komu saman til fundar dagana 26-27. okt. sl. Tilgangur fundarins var að leggja drög að fjárfestingarstefnu ársins 2008, en einnig að skoða stöðu sjóðsins í víðu samhengi. Til fundarins mættu nokkrir sérfræðingar fjármálastofnana sem fjölluðu m.a. um nýjungar í lífeyrismálum sem og aðstæður og horfur á hlutabréfa-, skuldabréfa- og gjaldeyrismörkuðum. Eins og fram kom hjá einum fyrirlesara er vægi fjárfestingarstefnunnar sjálfrar í árangri ávöxtunar eignasafnsins lang þýðingarmest og þannig mun meira en einstakar ákvarðanir um viðskipti. Það endurspeglast einnig í áherslum stjórnar sem hefur haft vinnufund sem þennan til þess að taka á almennri stefnumótun fyrir sjóðinn og mótun fjárfestingarstefnu á dagskrá í mörg ár. Áætlað er að taka tillögu um fjárfestingarstefnu sjóðsins fyrir árið 2008 til afgreiðslu á stjórnarfundi þann 23. nóvember og verður niðurstaðan kynnt hér á heimasíðunni.
Haustfundur - stefnumótun og fjárfestingarstefna

Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út
Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum...
meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt...
meira
Eingreiðslubætur við fráfall
Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við...
meira

Fréttir