Frá 1. mars 2009 má eigið framlag í séreignarsparnað vera 6% fyrir tekjuskattsálagningu launa, í stað 4% að hámarki áður. Þessi heimild er tímabundin til 1. október 2010 (5.gr. laga nr. 13/2009). Nú sem áður er séreignarsparnaður hagstætt sparnaðarform, m.a. vegna skattlagningar. Ef ráðrúm og vilji er til að hækka eigið framlag er hægt að óska þess beint hjá launagreiðanda eða með því að senda sjóðnum þessa - beiðni - , hafa samband við sjóðinn í síma 510 5000 eða með tölvupósti, mottaka[hjá]lifeyrir[punktur]is
