21. desember 2009
Breytingar á tekjuskatti 1. janúar 2010
Breytingar á tekjuskatti voru samþykktar á Alþingi í dag og taka þær gildi 1. janúar 2010. Staðgreiðsla skatts á lífeyri reiknast samkvæmt hinum nýju lögum við útborgun þann 1. febrúar nk. vegna lífeyris fyrir janúar.
Tekin eru upp þrep í ákvörðun tekjuskatts. Skattprósentan, tekjuskattur að viðlögðu 13,12% útsvari, verður 37,22% á tekjur undir 200 þúsundum króna á mánuði, 40,12% á þeim hluta tekna sem eru frá 200 þúsundum að 650 þúsundum króna og af tekjum sem umfram verða 650 þúsundum króna mun reiknast 46,12% staðgreiðsla skatta. Persónuafsláttur verður 44.205 kr. á mánuði. Sjá nánari útskýringar og dæmi á vef Ríkisskattstjóra - rsk.is

Sjóðfélagayfirlit og fréttabréf send út
Fyrra sjóðfélagayfirlit ársins 2010 ætti að hafa borist virkum sjóðfélögum...
meira
Launagreiðendur - aukin þægindi við iðgjaldaskil
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér nýja launagreiðendavefinn hér á síðunni. Þar er hægt...
meira
Eingreiðslubætur við fráfall
Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur þá sérstöðu meðal lífeyrissjóða að greiða eingreiðslubætur við...
meira




Fréttir


