Ávöxtunarleiðir

Við val á ávöxtunarleið má t.d. taka mið af aldri einstaklingsins og viðhorfi hans til áhættu.  Þetta er byggt á þeirri forsendu að greiðslur yngri einstaklinga eru lengur í ávöxtun og þola því frekar sveiflur sem fylgja hlutabréfaverði. Jafnan er það svo að eftir því sem skuldabréf hafa meira vægi, þeim mun minni er áhættan.

Aldursleið Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Aldursleið sjóðsins er byggð upp á þann hátt sem lýst er hér að neðan og er samsetning fjárfestinga sýnd á mynd. Þeir sem kjósa að ávaxta séreignarsparnað sinn samkvæmt Aldursleið ganga inn í leiðir 1-4 í samræmi við aldur. Flutningur milli Aldursleiða 1-4 er sjálfkrafa eftir því sem aldur færist yfir eins og taflan sýnir. Tvítugur sjóðfélagi byrjar t.d. í Aldursleið 1 og flyst svo í Aldursleið 2 við 40 ára aldur osfrv.

Aldursleið 1
Aldursleið 2
Aldursleið 3
Aldursleið 4
Aldur
16-39 ára
40-54 ára
55-64 ára
65 ára +

Eignaskipting aldursleiða 31.12.2011 (pdf-skjal)

Föst Aldursleið.
Hægt er að velja fasta Aldursleið 1,2,3 eða 4, sbr. mynd, og verður þá engin breyting með aldri nema rétthafi óski þess skriflega. Skipta má um leið hvenær sem er á sparnaðartímanum án aukakostnaðar. Þá er einnig mögulegt að nýta sér fleiri en eina leið samtímis.

Innlánsleið 
Innlánsleið ávaxtar séreignarsparnað á verðtryggðum og óverðtryggðum innlánsreikningum, en slíkir reikningar eru að fullu með ábyrgð ríkissjóðs samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í október 2008. Stefnt er að bestu fáanlegum kjörum á hverjum tíma. 

-Fjárfestingarstefna séreignarsparnaðar-